Ný heimasíða fyrir Svandís Kandís

Velkomin á heimasíðuna fyrir Svandís Kandís.

Ég heiti Svandís Guðmundsdóttir og er frumkvöðull fyrir handgerðum íslenskum brjóstsykri, hann er án allra aukaefna og með náttúruleg bragð og litarefni, rauði liturinn er t.d. úr rauðrófum, guli er Turmerik sem er t.d. guli liturinn í karrýinu.

Það eru rúmlega 4 ár síðan ég byrjaði að framleiða brjóstsykur þar áður var ég í námskeiðshaldi í brjóstsykurgerð og langaði að gera eitthvað meira með brjóstsykurinn og því ákvað ég að byrja að búa til mola til verslana, hefur þetta gengið alveg órúlega vel og viðtökurnar hafa verið mjög góðar.